sonur sætur

Jæja nú bloggar maður eftir góða pásu... Ég er einn af þeim sem missti vinnuna og var eða hélt að ég væri öruggur með hana því þetta fyrirtæki átti að vera það stert, en nei þetta fór svona eins og það fór, þeir voru bara búnir að fjárfesta of mikið og þá fór boltinn að rulla úr höndum þeirra, Og urðu að minka við sig mönnum og tækjum, svo þannig að maður er heima sem er líka gott og fylgjast með syni mínum að vaxa og dafna, sem er ómetanlegt. sem ég hef aldrey tekið þátt í eða séð. Svo þetta er nýr heimur fyrir mér. það er bara gaman að sjá hvað sonur minn er fljótur að stækka og farinn af stað í sínum stól sem eru með dekk. Ælli hann verði ekki formúlu kall:).... En jæja jólinn eru að koma og óska öllum gleðileg jól....

Kreppan

Hver finnur ekki fyrir kreppuni!?.... Nú er kreppa sem er slæmur hlutur og þessir menn á þingi vilja lítið gera nema tala og tala, Og hvað með þetta Bánka mál, ég er bara hissa á því að þeir geta hjálpað þeim, en ekki fólkinu sem á erfitt fyrir og fyrirtækinn sem verða fækka starfsmönnum sínum, Síðan þessi verðbréf það kallar bara á stríð, bánkar ríja okkur alveg eins mikið og þeir geta tekið af okkur með þessum háu vöxtum og hver getur staðið undir því? Einginn held ég að minsta kosti ekki þessi venjulegur maður.. Ég gæti skrifað endalaust um þetta. En maður verður að bíta á jaxlinn og vona það besta og skera mikið nyður til að komast í gegnum þessa kreppu, Sem Davíð Oddson stýrir, Og nú verðum við að standa saman, svo þessir menn láta ekki okkar land fara ílla, Og væri gaman að heyra í ykkur sem lesa þetta...

Gaman að lifa.

Jæja nú er komið ágúst og þann mánuð fæddist ég, með bros á vör að koma í þennan heim:) en vil nú ekki nefna hvaða ár það var, því ég vil ekki upplísa hvað ég er ungur haha eða að minsta kosti ungur í anda... Jæja nú er víst margir farnir í útilegu og sumir að skríða oní svefnpoka eftir fjöruga nótt, sem er gaman fyrir suma... En hvað með mig... Sid ég hér heima og hef það gott og er ánægður með mitt, því hér við hlið mér er minn sonur sem er að verða 3 mánaða gamall.. Og hann heitir Björn þór.... Við feðgar skemmtum okkur vel heima og njótum þess bara. og leyfum múttu að sofa aðeins... Því við eigum smá erfitt með að sofa sjálfir, því Mútta hrítur nokkuð hátt:)) hahaha jæja gott í bili hér, því við feðgar ællum að klæða okkur...

Allt og ekkert

Jæja ælli það sé ekki kominn tími að blogga hér núna:) .... Mér finnst voðalega gaman að blogga hér þegar ég fæ hugmyndir í kolli minn, en því miður eiga þessar hugmyndir að gufa fljótt upp, annas hef ég verið í góðu fríi, en samt svona aðgerðalaus og farinn að líða ílla af því, en samt reini ég að gera einhvað eins og ditta að húsi og garði, þegar veður leyfir sem hefur verið dittót vegna veður, þó ég sé búinn að mála allt, eða þannig... Og svo hef ég verið að taka annað slægið svona Transferðir á Flugvöll á nóttu sem er ágætt því ég hef verið á nýrri rútu sem er sjálfskift og mjög þægileg maður svífur bara á þessu tæki og finnur ekki fyrir neinu á vegum. Jæja ég veit ekki hvað er hægt að seyja hér í bili, nema ég ælla fara gefa Björn þóri, pela núna... Bæjó hér. og munið að kvitta fyrir ykkur...

Umferð

Jæja er ekki bloggið til þess að kvarta eða hvað? En ég nota nú blogg mitt til þess að tjá mig sem ég geri núna.... Það er þessi umferð um götur í borgini.... Hvað er að fólki? það hugsar ekki neitt, þegar það er að keyra og frekjan nær yfirhöndini á þessari umferðamenníngu þarna, allir að flýta sér og troða sér frammfyrir stóru bílana, sem er mjög hættulegt því við eigum nú ekki auðvelt að stoppa.. Og því taka margir mjög stóra áhættu að reina vera á undan stærri bílum. En takið betur eftir augl sem er sagt frá barni sem kannski bíður of leingi eftir að verða sótt af foreldrum sínum, jafnvel gæti sú bið verið til eilífðar... Sterk augl þessi, en samt höldum við fullorðna fólkið að það komi ekkert fyrir okkur, En aldrey að segja aldrey, því við vitum ekki hvenar okkar tími er.. Svo vil ég í endanum segja, Farið mjög varlega og hugsið ykkur vel um, áður en þið ællið að flýta ykkur í umferðini, því það er betra að koma seint en aldrey... því þessi umferðamenníng er orðin jafn rugluð eins og er á þingi, Allir hugsa bara um sig... En það er alsekki nóg, því við erum ekki ein!!!!! Látum þessa umferð gánga eins og okkur var kennt!! Tannhjól!!!! þá komast allir heilir heim.. Amen!!

Allt og ekkert

Ég er búinn að vera lesa önnur blogg, og finnst þau mörg góð, en margir samt að kvarta um allt og ekkert.  Eins og með þennan ísbjörn, Mörgum fannst sárt að sjá hann vera drepinn, Því þeir segja að það hafi verið svo dýrt að geta haldið honum lifandi. En þurfti það endilega vera sýnt í sjónvarpi, eins og allt annað... Ekkert má vera í friði fyrir þessum frétta mönnum. Og margar spurníngar frá þessu fólki alveg fáranlegar.... Svona er þetta þjóðfélagað í dag... Svo eitt í viðbót hvar eru þessir Trukkakallar sem voru að mótmæla, eru þið farnir í holuna ykkar, eða er stulli búinn að gera allt bilað um þessi mótmæli og enginn tekur mark á þessu. Og þessi möppudýrinn á þingi brosa..... Jæja læt þetta duga

Stoltur faðir

Nú er komið að því að monta sig meir af nýja erfingja sínum... Sem hefur haldið foreldrum sinum gángandi, með því að láta stjana við sig... Ég er mjög stoltur af honum, enda líkist hann mér meir og meir, Pabbinn er búinn að vera í frí í tæpa viku til að vera með stáknum fyrstu dagana, og hefur hann ekkert hvílt sig almennlega,því kallinn fór alveg yfir yfirsnúning... Tók til úti, sló blettinn, málaði húsið, og þreif allt hátt og látt inni, Síðan uppá loft og fór að smíða... þetta hljómar eins og einhver drauma maður, sem gerir allt. En eftir þetta erfiði er hann voða stoltur af verkum sínum og börnum sínum... Jæja nú er nóg komið, því nú læt ég aðra telja allar villur sem eru hér og brosi á meðan. og knúsa vel son minn... bæjó

Sonur Fæddur.....

Sonur fæddur 043

Þann 18.5.08.. kl 20:24.. Fæddist engill í heiminn, ( Strákur ) sem vóg 3865g 52cm... Fullkominn prins. Kom hann í himinn í hreiðrinu á lansa í rvk og fæddist í vatni, sem mér fannst mjög merkilegt að sjá, því ég hef ekki séð þannig fæðingu fyrr... Mér fannst fæðinginn taka mjög langan tíma, En svo var ekki, því ég missti allt tímaskeið, Og var með tár í augun af stolti... Og er maður orðin ríkur af börnum, því ég á fyrir þrjú börn fyrir, já þrjú börn og fjórða barnið núna, og finnst gaman af hafa öll börn mín. og leika við þau, þá sér maður barnið í sjálfum sér...


Umbreitingar...

Ljós í myrkri Jæja nú þessi erfiði dagur að renna sitt skeið....Sleeping    Hálf þreittur í  vinnu minni, því ég náði ekki að slökkva á mér þessa nótt, vegna láta sem voru útifyrir. eða réttara sagt undir mér, Því heimilið mitt þessa nóttina fór hrista sig rækilega með bylgjum og látum, að annað eins hef ég ekki upplifiað, Þó maður sé gamall séCrying ....  Ef maður getur orðað það þannig, En maður er nú alltaf ungur í andaHalo .. En þessa rosa nótt varð jarðskjálfti Undir Grindavík, ekki minna en meira en það, og með þvílíkum látum að ég var nærri lentur á gólfið við hliðina á rúmi mínu, og er það nú stórt.... Jarðskjálfinn var svo öflplugur, Að elsta dóttir konu minnar sem er að verða 15 ára skvísa varð svo hrædd, að hún var komin uppí til okkar hjóna, og þá vorum við 4 uppí stóra rúminu okkar,  Svo eftir stelpuni kom Köttur góður, sem er kóngur á þessu heimili og lagðist milla fóta hjá mér, og var ég þá kominn á brúnina á stóra rúminu, og gat valla mig hreyft... Og urðum 5 uppí,  og einn köttur undir rúminu, sem við köllum jonor, sem er  sama tagta og garfíld kötturinn.... Og varð meiri hreyfíng á stóra rúminu okkar. að ég sjáfur Húsbondinn datt á gólfið, og átti ég mjög erfitt að finna mér pláss uppí rúminu vegna þreingsla, því allir voru komir með góðan stað, og meira seyja kötturinn, sem hreyfði sig valla, fyrir mér, Því hræðslan var svo sterk... En einn ´stór prins svaf sínum væra svefni uppí rúmi sínu og dreymdi fallega drauma.... Whistling .... Samt fannst mér þetta voða gaman, að upplifa svona sterkan skjálfta, sem mældist 4 á rigter eða meir.... Þessi fimmti uppí rúminu okkar er Nýja barnið okkar sem er að koma í mai...

Snjó dagurinn mikli

Sælt verið fólkið...... Eins þeir sem hafa opnað mitt blogg hafa, hafa tekið eftir því, að eingar nýjar færslur hafa verið settar inn mjög leingi og ferðasagan staðnað.... Blush ...... En svona getur maður verið latur. en það er sagt... betra en seint en aldreyHalo .... Maður hefur verið að vinna mikið þessa daga og verið einhvað nyðri í sér.... Samt svona kátur að utan og verið að gera einhvað annað, og verið að taka myndir af hinu og þessu, eins margir hafa frétt hefur verið hér alveru vetra veður, og stóð í nokkra daga, þótt þessi mikli snjór hafi komið á einum deigi og allt farið úr skorðum í Grindavík, þannig Börninn hér eru mjög kát og maður fór að hugsa, þegar ég var púki og gerði mörg snjóhús á sínum tíma... því snjórinn kætir mann, þó það sé ekki fyrir alla að hafa svona mikin snjó... En það er bara svo fallegt að sjá hann hvað þetta hvíta gull getur verið yndislega fallegt... ví gaman af þessu

Næsta síða »

Höfundur

sannleikur
sannleikur
Lífsreinsla

Nýjustu færslur

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • 2.vikan prinsinn okkar 021
  • Sonur fæddur 043
  • ...dsc00061
  • ...2112007_018
  • Ljós í myrkri

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 663

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband